Fækkun broddgalta í Svíþjóð síðustu tíu ár hefur verið svo mikil að dýrin eru metin í útrýmingarhættu. Dýralæknastofnun landsins hefur því beðið fólk sem finnur dauða broddgelti að koma með þá til rannsóknar.
„Við vonumst til að afla þekkingar á því hvers konar sjúkdómar herja á broddgelti, segir aðstoðar dýralandlæknir Svíþjóðar, Gete Hestvik.
Ef fólk rekst á dauðan broddgölt á það að skila honum til yfirvalda. „Maður getur það ef það er hægt og hafa hann í kæli. En ég er ekki viss hvort við kryfjum þá alla, því þeir þurfa að vera sæmilega á sig komnir. Erfitt er að sjá hve lengi þeir hafa verið dauðir séu þeir heilir og með feldinn á sér.“