Banaslysum í umferðinni hefur fækkað allverulega á undanförnum áratugum.
Ef rýnt er í slysatölur á vef Samgöngustofu sést að þeir sem láta lífið í umferðinni eru meira en helmingi færri nú en á fyrsta áratug þessarar aldar.
Fjórir hafa látist í umferðarslysum það sem af er ári en tveir létust í tveimur alvarlegum umferðarslysum í síðustu viku.
Á fjórða tug létust árið 2000 og 2006
Á árunum 2000-2009 létust alls 202 í umferðarslysum hér á landi, sem gerir rúmlega 20 manns á ári að meðaltali. 32 létust í umferðarslysum árið 2000 og 31 árið 2006. Ekki hefur gerst síðan þá að fjöldi látinna á einu ári telji á fjórða tug.
Strax á öðrum áratug þessarar aldar, á árunum 2010-2019, fór fjölda látinna að fækka. 122 létust á þessum árum í umferðarslysum, sem gerir rétt rúmlega 12 á ári að meðaltali. 18 manns létust árið 2016 og 2018 en fæstir létust árið 2014, þegar aðeins fjórir létust í umferðarslysum.
Á þessum áratug hefur fjöldi látinna haldið áfram að lækka en á árunum 2020-2025 féllu 57 frá í umferðarslysum, sem gerir 9,5 á ári að meðaltali. Flestir létust árið 2024, alls 13 talsins, en í janúarmánuði það ár urðu fimm banaslys, þar sem sjö manns létust.