Verjendur Mariusar Borg Høiby ætla að áfrýja fjögurra ára fangelsisdómi yfir honum.
Upplýsingar um efnisatriði dómsins hafa verið að birtast smátt og smátt. Áður var sagt frá því að Høiby hafi verið sakfelldur fyrir tvær nauðganir en sýknaður af tveimur öðrum sem hann var ákærður fyrir. Í þeim nauðgunum sem hann var sakfelldur fyrir voru konurnar sofandi og gátu ekki borið hönd yfir höfuð sér.
Høiby var einnig sakfelldur fyrir ofbeldi í nánu sambandi gegn þáverandi kærustu sinni, Noru Haukland, og grófa líkamsárás og brot á nálgunarbanni gegn annarri konu. Hann var dæmdur til að greiða þessum konum samtals jafnvirði 8,4 milljóna íslenskra króna. Þá var hann einnig dæmdur fyrir vörslu fíkniefna, umferðarlagabrot og hótanir.
Saksóknari hafði krafist fangelsis upp á sjö ár og sjö mánuði yfir Høiby, meðan verjendur hans töldu hæfilega refsingu vera eitt og hálft ár. Segja má að dómarinn hafi því farið bil beggja með fjögurra ára fangelsisdómi.
Verjendurnir Petar Sekulic og Ellen Andenæs telja engar sannanir liggja fyrir um sekt í hluta málanna sem Høiby er dæmdur fyrir. „Það liggur í eðli málsins að áfrýjun er vel möguleg,“ sagði Sekulic við norska ríkisútvarpið. Sekulic staðfesti svo við VG að dómnum yrði áfrýjað. Þá hafði hann rætt málið við Høiby.
Þá ætla verjendur jafnframt að fara fram á það aftur að Høiby verði sleppt úr haldi. Áfrýjunardómstóll hafnaði sambærilegri beiðni í síðustu viku.
Sturla Henriksbo saksóknari segir dóminn sigur fyrir réttarkerfið og hann sýni að enginn sé hafinn yfir lög sama hver hann er eða hverjum hann tengist.
Fréttin var uppfærð eftir að verjandi staðfesti áfrýjun í málinu.