Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá málinu en þar kemur fram að rapparinn, sem heitir réttu nafni Sidney Royel Selby III, hafi verið færður bak við lás og slá í Suður-Karólínu á þriðjudaginn og sé enn í haldi.
Staðarmiðillnin WBTW fjallaði um málið í gær en þar segir að lögreglan í Horry-sýslu hafi handtekið Selby og hann sé kærður fyrir heimilisofbeldi og fyrir eignaskemmdir í þremur liðum að andvirði á bilinu tvö þúsund til tíu þúsund Bandaríkjadala (milli 250 þúsund til 1,25 milljón króna).
Atvikið átti sér stað á þriðjudaginn í heimahúsi í borginni Conway eftir að rapparinn lenti í rifrildi við konu vegna sjónvarps sem hann hafði tekið af vegg í húsinu.
Konan sagði við lögreglu að Selby hefði tekið síma hennar og brotið þá með hamri sem varð til þess að hún yfirgaf heimilið með barn í fanginu og leitaði skjóls hjá nágrönnum. Áður en hún komst þangað hafi hann kastað henni í jörðina en henni tekist að koma sér á fætur og læsa sig inni á baðherbergi nágrannanna. Á meðan hafi Selby notað hamar og skrúfjárn til að vinna skemmdir á bílum nágrannanna.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Selby kemst í kast við lögin, í mars síðastliðnum var hann handtekinn vegna meints heimilisofbeldis gegn barnsmóður sinni en var sleppt úr haldi gegn tryggingu.
Þremur árum fyrr var rapparinn handtekinn í flugvél á leið frá Tokyo til Minneapolis fyrir að hafa fróað sér hamslaust um borð. Hann sagðist þá hafa verið í andlegu ójafnvægi eftir að hafa tekið lyf og lýsti því yfir að hann hyggðist leita sér hjálpar.
Desiigner kom sér fyrst á kortið árið 2016 þegar hann gaf út smellinn „Panda“ sem var síðan samplað í „Father Stretch My Hands Pt. II“ með Kanye West. Síðan þá hefur honum gengið bagalega á sviði tónlistarinnar.