Greint var frá því í morgun að Steinn Ármann hefði andast að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári.
Steinn var annar helmingur gríntvíeykisins Radíusbræðra, en Davíð Þór var hinn helmingurinn. Báðir voru þeir Hafnfirðingar, og höfðu starfað saman í hljómsveitinni Kátum piltum.
Radíusbræður slógu í gegn á tíunda áratug síðustu aldar.
„Þeir þóttu þá ferskir og með nýja grínnálgun sem var í grófara lagi en féll í góðan jarðveg, einkum hjá ungu fólki,“ segir í umfjöllun Glatkistunnar um tvíeykið.
Þeir vöktu athygli bæði með uppistandi, og í útvarpi og sjónvarpi. Fyrst munu þeir hafa komið fram á ljósvakamiðlum í útvarpsþættinum Radíus á Aðalstöðinni.
„Ég var byrjaður að vera með uppistand svona í anda Eddie Murphy og fleiri góðra. Mér var svo boðið að vera með útvarpsþátt á Aðalstöðinni. Ég fékk Davíð Þór með mér í það líka og þá varð til útvarpsþátturinn Radíus sem gekk í 3-4 ár og var óskilgetið foreldri Górillunnar sem var morgunþáttur á Aðalstöðinni og X-inu. Þetta var svona útvarpstímabilið og þá hafði ég engan áhuga á að vera í leikhúsinu,“ sagði Steinn Ármann um upphaf Radíusbræðra í viðtali við Viktoríu Hermannsdóttur á Vísi árið 2015.
Svo birtust þeir í skammlífu sjónvarpsþáttunum Limbó á Rúv. Þeir sneru aftur í sjónvarpið með þáttunum Radíus, tólf þátta séríu sem var sýnd á Rúv árið 1995.
Minna fór fyrir Radíusbræðrum eftir aldamótin, en þeir voru þó ekki úr sögunni. Þeir komu nokkrum sinnum fram á sviði.