Dagrún Fanný Liljarsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Heislugæslu höfuðborgarsvæðisins, en áður starfaði hún hjá Barnavernd Reykjavíkur.
Í tilkynningu frá Strandabyggð segir að Dagrún hafi lokið meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2016 og BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2014. Hún hefur jafnframt lokið námi í mannauðsstjórnun og bókhaldi, auk þess að vera menntuð sjúkraliði.
Fimmtán umsóknir bárust um starf sveitarstjóra.
Ríflega 400 manns búa í Strandabyggð, en fjölmennasti þéttbýlisstaður er Hólmavík.