Landsmenn geta búist við nokkrum umhleypingum í veðri næstu daga.
Í dag verður þurrt að kalla víðast nema norðanlands, á Austurlandi og suðaustanlands og blæs nokkuð á köflum. Á morgun er útlit fyrir bjart rólegheitaveður. Þó verður aðeins svalara en í dag. Á miðvikudag hvessir og rignir hressilega, einkum sunnan- og austanlands, samkvæmt pistli vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðanátt, fimm til þrettán metrar á sekúndu vestantil en annars hægari fram eftir degi. Þokusúld eða dálítil rigning norðanlands og smá væta á Austurlandi síðdegis. Þurrt að mestu í öðrum landshlutum, en stöku skúrir suðaustanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast syðra.
Lægir og léttir víða til á morgun, en norðvestan 5-13 austanlands og smáskúrir í fyrstu.