Fyrrum gengismeðlimur í gengi í Los Angeles, Duane „Keffe D“ Davis, var fundinn sekur um að hafa myrt rapparann Tupac Shakur fyrir dómi í Las Vegas í gær. Það tók kviðdóminn aðeins nokkrar klukkustundir að komast að þeirri niðurstöðu að hann væri sekur.
Dómari úrskurðar fangelsisdóm Davis í 13. október nk. Hann á yfir höfði sér lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn en Davis segir að hann stefni á að áfrýja dómnum.
Þrjátíu ár eru liðin síðan rappgoðsögnin Tupac Shakur var myrtur í Las Vegas. Morðið á Tupac Shakur hefur fram til þessa verið eitt af þekktari óupplýstu morðmálum Bandaríkjanna.
Stærði sig af því að tengjast morðinu
Morðmálið reyndist erfitt að leysa vegna skorts á sönnunargögnum. Davis stýrði eitt sinn genginu South Side Compton Crips, í Compton í Kaliforníu og hafði í mörg ár stært sig af því að tengjast morðinu, bæði í samtölum við lögreglu og fjölmiðla.
Davis gaf út ævisögu sína árið 2019, Compton Street Legend, þar sem hann enn á ný sagðist tengjast morðinu. Hann hefur síðan dregið í land með yfirlýsingar sínar og sagðist vera saklaus þegar hann var ákærður fyrir morðið.
Sagður hafa fyrirskipað morðið
Fyrir dómi var Davis sakaður um að hafa fyrirskipað morðið á Shakur eftir að frændi Davis var barinn af fylgdarliði rapparans í spilavíti í Las Vegas.
Saksóknarinn Binu Palal sagði í lokaávarpi sínu fyrir dómi að Davis hefði ekki getað sætt sig við það og kallað hóp saman sem hóf leit að rapparanum í Las Vegas. Um tveimur klukkustundum síðar var Shakur skotinn í bíl á rauðu ljósi, en hann sat í framsæti bílsins og reyndi að fela sig.
Davis var í bíl sem keyrði upp að bílnum sem Shakur var í. Davis rétti byssu til einhvers sem var með honum í bílnum og fyrirskipaði honum að skjóta rapparann. Shakur lést af völdum áverka sinna á sjúkrahúsi sex dögum síðar. Davis er sá eini sem var í umræddum bíl sem er enn á lífi. Hann er eini maðurinn sem hefur verið ákærður í tengslum við skotárásina.
Shakur var 25 ára þegar hann lést. Hann ólst upp í Harlem og Baltimore en varð síðar ímynd Kaliforníu-hip-hopsins þegar hann gerði samning við Death Row-plötuútgáfuna í Kaliforníu. Hann var einn af lykilmönnum í hip-hop-rígnum milli austur- og vesturstranda Bandaríkjanna á 10. áratugnum.