Brynjar Níelsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur gert rannsókn á mótmælendum á Íslandi og er niðurstaða hans að mótmælendur hafi flest aldrei farið út fyrir skólalóðina og trúi því að það sé gáfaðra en aðrir. „Alltaf jafn merkilegt hvað RÚV og einkum Sýn nenna að elta fólk í geðrofi um allar trissur sem er að mótmæla lögmætum hvalveiðum, helst með því að valda öðrum tjóni,“ segir Brynjar í færslu á Facebook og vísar þar í fréttir miðlanna af nýlegum mótmælum gegn hvalveiðum.
Brynjar hjólar í mótmælendur: „Oft stutt í mikla reiði og jafnvel geðrof yfir óréttlæti heimsins“