Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ aðfararnótt mánudags þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar. Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um innbrotið í gærmorgun. Rannsókn málsins er á frumstigi segir Hjördís og verið er að afla gagna.
Jón Magnús Jónsson bústjóri á Reykjabúinu segir að brotist hafi verið inn í 4 hús, dyr opnaðar og reynt að reka fugla út. Jón segir málið gríðarlega alvarlegt, innbrotsþjófurinn hafi brotið öll sóttvarnarlög sem setji alla fugla á búinu í hættu. Aflífa þurfti nokkra fugla sem höfðu verið reknir út úr búinu.
„Hann gengur hérna um á skítugum skóm og brýtur allar sóttvarnarreglur. Setur fuglana í gríðarlega hættu ef það er eitthvað smit sem berst inn.“
Jón Magnús segir þá sem brutust inn hafa skilið eftir bréf eins og skilið var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss á dögunum. Bréfið var á íslensku og í því kemur fram að innbrotið sé gert í yfirskyni dýraverndar.
„Hann skilur hérna eftir bréf og er að bera sér blak af þessum verknaði.“
Samkvæmt heimildum fréttastofu bendir allt til þess að sami aðili hafi verið að verki.
Innbrotið náðist á öryggismyndavélar sem eru staðsettar víðs vegar um svæðið. Þar sést skýrlega að einstaklingurinn var einn að verki.
Fréttin verður uppfærð.