Lögreglu barst tilkynning um innbrotið laust eftir klukkan sex í gærkvöldi að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn kirkjunnar hafi komið að ummerkjum innbrotsins og hringt í lögreglu. Ekki er vitað hvenær innbrotið átti sér stað.
Málið sé í rannsókn en enginn hafi verið handtekinn vegna málsins og enginn grunaður að svo stöddu.