Brim kaupir eigin bréf fyrir rúma sex milljarða
Útgerðarfélagið Brim á nú nóg af eigin hlutabréfum til að geta greitt eigendum Lýsis sem nemur 10 af 20 milljörðum af kaupverði fyrirtækisins. Núverandi eigendur Lýsis verða fjórðu stærstu hluthafar útgerðarinnar.
Útgerðarfélagið Brim hefur samþykkt tilboð frá hluthöfum um sölu á samtals 69 milljónum hluta í félaginu. Kaupverðið er 88 krónur á hlut og nemur heildarverðmæti endurkaupanna rúmum 6,1 milljarði króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en stjórn félagsins hafði boðist til að kaupa bréf fyrir allt að 70 milljónir króna að nafnvirði. Uppgjörsdagur viðskiptanna er á morgun.
Endurkaupin koma í kjölfar þess að Brim hefur tilkynnt um stór viðskipti þar sem hlutabréf í félaginu eru hluti af greiðslu. Annars vegar hefur félagið samþykkt kaup á Lýsi hf. fyrir 20 milljarða króna, þar sem helmingur kaupverðsins verður greiddur með hlutabréfum í Brimi. Hins vegar hefur Brim selt 43 prósenta hlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi til KG Fiskverkunar fyrir 1,8 milljarða króna, en greiðslan fyrir þann hlut verður einnig innt af hendi með hlutabréfum í Brimi.
Brim átti …