Bragi Þór Thoroddsen hefur verið ráðinn sveitarstjóri Fljótsdalshrepps og hefur hann störf í byrjun ágúst.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Bragi hefur verið sveitarstjóri Súðavíkurhrepps sl. 7 ár. Hann er lögfræðingur að mennt, er varaþingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Þá var hann undanfarið hálft annað ár formaður samgönguráðs.
Bragi er fæddur 1971 í Reykjavík en uppalinn á Patreksfirði. Hann starfaði á yngri árum við saltfiskverkun og var á sjó. Bragi var virkur í bæjarpólitík í Kópavogi og tók að sér nefndarstörf árin eftir að hann lauk námi. Starfaði hann sem lögfræðingur, fyrst hjá Sjúkratryggingum og síðar hjá Útlendingastofnun.
Bragi er giftur Selmu Guðmundsdóttur og á þrjú uppkomin börn.