Bræðurnir á toppnum eftir IKEA-viðskiptin
Bræðurnir Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir eru báðir meðal tíu tekjuhæstu skattgreiðenda á Íslandi. Önnur systir þeirra, Lilja, er einnig í tekjuhæsta prósentinu en hin, Ingibjörg, greiðir sína skatta á Bretlandi. Þau eru börn Pálma Jónssonar, stofnanda Hagkaups, en bræðurnir áttu viðskipti sín á milli með IKEA.
Sigurður Gísli Pálmason fjárfestir var næsttekjuhæsti einstaklingur á Íslandi í fyrra. Árstekjur hans námu tæpum 3,2 milljörðum króna en hann greiddi um 696 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt.
Sigurður Gísli seldi IKEA á Íslandi til bróður síns, Jóns Pálmasonar, í fyrra. Sá er númer 8 á Hátekjulista Heimildarinnar með um 1,3 milljarða króna í árstekjur.
Félag Jóns, Fari ehf., keypti í fyrra allt hlutafé í Miklatorgi, rekstrarfélagi IKEA á Íslandi, af Eignarhaldsfélaginu Hof, sem er í eigu bræðranna. Við það varð Jón eini eigandi IKEA en Hof seldi sömuleiðis Urriðakot ehf. sem heldur utan um fasteign IKEA í Garðabæ.
Bræðurnir höfðu árið áður selt rekstur IKEA í Eystrasaltsríkjunum til Inter IKEA Group og má að líkindum rekja háar fjármagnstekjur þeirra í fyrra til þeirra viðskipta, enda lauk söluferlinu í desember 2024. Reksturinn var í eigu Fara og Dexter Fjárfestinga ehf., sem er í eigu Sigurðar Gísla. Það félag skilaði 27 milljarða …