Hildi Björnsdóttur borgarstjóra var fagnað innilega á fundi borgarráðs í dag í tilefni af stórafmæli hennar en hún fagnar fjörutíu árum í dag.
Í tilefni dagsins var Hildi færð kaka og bollakaka með myndum af henni sjálfri sem sló í gegn á meðal viðstaddra og ekki síst hjá afmælisbarninu.
Hildur fæddist 11. júní 1986 í San Fransisco í Kaliforníu. Þar bjó hún fyrstu æviárin.
Nálgast má afmælisgrein um Hildi á blaðsíðu 60 í Morgunblaðinu í dag.
Hildi var vel fagnað í Ráðhúsinu.
mbl.is/Eggert Jóhannesson

