Borg Brugghús og Kaleo hafa leitt saman hesta sína og boðað útgáfu á nýjum samstarfsbjór, Hey Gringo, sem dregur nafn sitt af samnefndu lagi sveitarinnar af plötunni Surface Sounds frá árinu 2021. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Bjórinn kemur í verslanir síðar í sumar, en tónleikagestir á Kaleo-tónleikunum á Þingvöllum um helgina fá að smakka hann á undan öðrum.
Hey Gringo verður forsýndur við afhendingu armbanda í verslun 66°Norður á Hafnartorgi í dag, áður en hann verður fáanlegur á tónleikasvæðinu sjálfu á laugardag.
„Hey Gringo er léttur og ferskur mexíkóskur lagerbjór. Hugmyndin að bjórnum var að fanga alvöru sumarstemningu. Ekki skemmir fyrir að hann er léttur á alla vegu, bæði í áfengisprósentu sem og í kaloríum,“ segir Árni Theodór Long, bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi í tilkynningunni. „Bjórinn inniheldur 34 kaloríur á hverja 100 ml.“
„Þetta var skemmtileg áskorun“
„Það sem einkennir mexíkóska lagerbjóra er ákveðin sæta, góð fylling og frískandi karakter. Bjórar í léttari kantinum hafa notið vinsælda undanfarin ár og ekkert bendir til annars en að svo verði áfram. Við ákváðum að svara því kalli með því að keyra niður kaloríufjöldann í Hey Gringo, án þess að það bitni á ríkulegheitum bjórsins. Þetta var skemmtileg áskorun og útkoman frábær, þótt ég segi sjálfur frá.
Hugmyndin um að brugga og gefa út mexíkóskan lagerbjór hefur lengi blundað í okkur og þegar leiðir okkar lágu saman með Kaleo, small þetta allt saman. Það lá í augum uppi að bjórinn fengi nafnið Hey Gringo enda lagið ekkert eðlilega gott og grípandi og fangar þessa stemningu fullkomlega. Það að fá tækifæri til að vinna með jafn stóru og flottu bandi og Kaleo er sannur heiður og virkilega skemmtilegt. Kaleo-menn mættu að sjálfsögðu til okkar í brugghúsið, brettu upp ermar og tóku þátt í að skapa þetta með okkur og gáfu okkur bruggmeisturunum ekkert eftir í þeim efnum,“ segir Árni samkvæmt tilkynningu.


