Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og þingmenn stjórnarandstöðunnar tókust á um það á Alþingi í dag hvort uppfæra þyrfti fjármálaáætlun vegna brostinna forsendna.
Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tóku til máls í óundirbúnum fyrirspurnum við upphaf þingfundar.
Báðir spurðu þeir hvers vegna ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir uppfærðu ekki fjármálaáætlun. Þeir vísuðu meðal annars til aukins atvinnuleysis og minnkandi hagvaxtar til marks um að forsendur fjármálaáætlunar væru brostnar. Þeir vísuðu einnig til dekkri horfa í nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Stefáns Vagns. Hún sagði að ekki væri komið uppfært mat á tekjum og útgjöldum ríkissjóðs og því væri ekki hægt að uppfæra fjármálaáætlun.
„Það er pólitísk áhersla þessarar ríkisstjórnar að skila hallalausum fjárlögum 2027. Við munum skila hallalausum fjárlögum 2027 sama hvað það kostar. Við ætlum að standa við það markmið.“
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði að ekki væri hægt að uppfæra fjármálaáætlun á grundvelli nýrrar spár Seðlabankans. Hún væri til þriggja ára en ekki fimm eins og fjármálaáætlun. Hann sagði breytinguna nú ekki meiri en milli fyrri þjóðhagsspá bankans.
Guðlaugur Þór lýsti óánægju sinni með svör ráðherranna.
„Meirihluti fjárlaganefndar er búinn að viðurkenna hið augljósa að forsendur eru brostnar og ríkisstjórnin setur kíkinn fyrir blinda augað og gefur ekkert fyrir allar þær breytingar sem voru gerðar til þess að vanda verklag við opinber fjármál.“