Í dag er von á hægri breytilegri átt eða hafgolu. Bjart og þurrt að mestu á Suðvesturlandi en skýjað með köflum og skúrir í öðrum landshlutum. Veður á morgun verður áfram svipað, að því er fram kemur í stuttum pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Hæg breytileg átt eða hafgola. Bjart með köflum og þurrt að kalla suðvestanlands, annars skýjað með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif.
Svipað veður á morgun, en þó má búast við síðdegisskúrum í flestum landshlutum. Hiti 6 til 13 stig yfir daginn, hlýjast sunnanlands