Á morgun gengur í strekkings suðvestanátt með skúrum eða éljum og þá fer hlýnandi. Lægir og léttir til á sunnudag og kólnar aftur, en þó eru líkur á stöku éljum síðdegis, að því er kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Vaxandi suðvestan- og vestanátt og þykknar upp, 8-15 m/s með skúrum eða slydduéljum síðdegis, en lengst af bjart suðaustantil. Hiti 4 til 9 stig að deginum, en frystir víða um kvöldið.
Á sunnudag:
Hæg breytileg átt, en strekkings norðvestanátt austast fyrir hádegi. Víða bjart veður, en dálítil él á Suðausturlandi síðdegis. Hiti 2 til 9 stig að deginum, hlýjast syðst.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Norðlæg átt og dálítil él, en bjart suðvestan- og vestanlands. Kólnandi veður.