Dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra undirrituðu í dag samning við Bjarkarhlíð um áframhaldandi aðkomu þeirra að verkefnum tengdum mansali.
Bjarkarhlíð hefur sinnt verkefnum tengdu mansali frá árinu 2020 og á síðasta ári hafði Bjarkarhlíð aðkomu að 44 mansalsmálum. Af þeim málum tengdust 33 mál vinnumansali, 10 mál vændismansali og eitt mál var skilgreint sem þjónustuánauð á heimili.
Samningurinn er til fjögurra ára og felur í sér skuldbindingu upp á sextíu milljónir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.
Endurspeglar skýran vilja stjórnvalda
Verkefnin felast einkum í því að taka á móti þolendum mansals og samræma viðbrögð þeirra sem koma að mansalsmálum. Markmiðið er að greiða aðgengi þolenda mansals að viðeigandi þjónustu og tryggja réttindi þeirra.
„Baráttuna gegn mansali þarf að nálgast með ólíkum leiðum. Með þessum samningi leggja stjórnvöld áherslu á þolendur mansals og mannréttindi þeirra, sem verða alltaf að vera í forgrunni. Bjarkarhlíð fær núna svigrúm til að byggja upp enn frekari færni til að mæta þolendum mansals með upplýstum hætti og samræma starf þeirra sem koma að því að tryggja réttindi þeirra. Fleiri tæki í baráttunni gegn mansali verða svo kynnt í nýrri aðgerðaáætlun í haust,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Samningurinn felur einnig í sér að Bjarkarhlíð þrói áfram aðgengilegt fræðsluefni um mansal og haldi árlega námskeið um mansal fyrir þá sem koma að þjónustu við þolendur.
„Sú ákvörðun að gera fjögurra ára samning við Bjarkarhlíð endurspeglar skýran vilja stjórnvalda til að efla þennan málaflokk til lengri tíma og tryggja áframhaldandi uppbyggingu þekkingar, þjónustu og stuðnings við þolendur mansals“, er haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, í tilkynningunni.