Prís hefur ráðið Birtu Ósk Friðbertsdóttur í starf markaðsstjóra. Í tilkynningu segir að frá því að verslunin opnaði hefur Prís fest sig í sessi sem ódýrasta lágvöruverslun landsins. Með ráðningu Birtu er ætlunin að efla enn frekar markaðsstarf og sýnileika Prís og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hefur.Birta Ósk hefur þegar hafið störf og hún hefur að baki fjölbreytta reynslu á sviði markaðsmála, verkefnastjórnunar og framleiðslu á auglýsinga- og sjónvarpsefni.
Birta Ósk nýr markaðsstjóri Prís