Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að drónaárásir Rússa í Þýskalandi beri öll merki þess að vera hryðjuverk sem framin eru að tilstuðlan stjórnvalda í Moskvu.
Kallas greindi frá því í dag að sendiherra Rússa í Brussel, höfuðborg Belgíu þar sem höfuðstöðvar ESB eru, hafi verið kallaður á fund fulltrúa sambandsins.
Tilefnið er drónaárásir á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi í síðasta mánuði. Þar fannst dróni hlaðinn sprengiefnum nærri flugvélum. Þjóðverjar staðhæfðu í gær að Rússar stæðu að baki árásinni. Fram að því höfðu þeir aðeins rætt um erlend stórveldi án þess að nefna Rússa.
„Við ætlum að ræða árásirnar í Leipzig. Það er ljóst að þær bera öll einkenni hyrðjuverka að tilstuðlan stjórnvalda. Spurningin er hvað við ætlum að gera við því.“