Lögmannsstofa Carls Baudenbachers, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, greindi sjálf frá því að Baudenbacher hefði þegið boð samtakanna Áfram Íslands um að koma fram á viðburði á hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem hugsanleg aðild Íslands að ESB yrði til umræðu.
Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður stjórnar Áfram Íslands, sagði við fréttastofu í gær að viðburðurinn væri ekki á vegum Áfram Íslands og sömu sögu segja Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, prófessorar emiritus, í opnu bréfi til rektors Háskólans í dag.
Ragnar hafði leigt salinn undir fundinn en honum var síðan tilkynnt að fundurinn mætti ekki fara fram í salnum. Í samtali við fréttastofu í gær vísaði Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í húsreglur salarins þar sem fram kemur að salurinn sé ekki leigður til einkaaðila eða frjálsra félagasamtaka.
Í opnu bréfi til rektors fyrr í dag sökuðu prófessorarnir fyrrverandi skólann um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og ESB með því að hlutast til um útleigu á salnum. Þá sagði í bréfinu að það væri „óskiljanlegur“ misskilningur af hálfu rektors að halda að fundurinn væri á vegum Áfram Íslands. Í reynd væri hann á vegum Rannsóknarseturs um stjórnmál og efnahagsmál í Félagsvísindastofnun HÍ.