Frægðarsól Chase skein skært á fyrsta áratug þessarar aldar. Hún ljáði hinni knáu Lilo rödd sína í teiknimyndinni Lilo&Stitch sem kom út árið 2002. Sama ár kom hún sér kirfilega fyrir í martröðum unglinga á öllum aldri með frammistöðu sinni sem Samara í The Ring.
Chase náði í kjölfarið að fá fast hlutverk í HBO-þáttunum Big Love sem gengu í fimm seríur auk þess sem hún fékk minni hlutverk í seríum á borð við ER og Sabrina the Teenage Witch.
Þegar komið er inn á síðasta áratug fór hlutverkunum þó að fækka og halla fór undan fæti. Chase komst æ oftar í fréttir fyrir óæskilega hegðun eða að hafa komist í kast við lögin. Daveigh Chase hafði síðustu ár dregið sig úr sviðsljósi Hollywood.