Íranskir ríkisfjölmiðlar hafa greint frá árásum Bandaríkjahers á Íran í nótt. Sjö eru sagði hafa verið drepnir í árásum í suður Íran.
Al Jazeera hefur eftir fréttastofunni Fars að Bandaríkjaher hafi gert árásir á fimm brýr í suður Íran. Breska ríkisútvarpið BBC hefur staðfest að árás hafi verið gerð á brú vestan við hafnarborgina Bandar Abbas.
Íranskir miðlar greindu einnig frá flugskeytaárásum á Qeshm-eyju nærri Hormússundi og nærri kjarnorkuveri í Bushehr við Íransströnd.
Miðstjórn bandaríska hersins CENTCOM birti færslu á X í gærkvöld um að herinn hefði hafið árásir á írönsk skotmörk að nýju. Ekki var tilgreint hver skotmörk hersins væru en tekið var fram að árásunum væri ætlað að niðurlægja hernaðarlega getu Írana. Nokkrum tímum síðar var birt önnur færsla þar sem fram kom að árásum væri lokið.
Íranar gerðu árásir á bandarískar herstöðvar í Kúveit, Katar og Barein í nótt. Loftvarnarkerfi í Katar skutu niður flugskeyti en eitt barn slasaðist þegar brak féll niður í seinni slíkri aðgerð samkvæmt frétt Al Jazeera.
Íranski byltingarvörðurinn segir að tvær ratsjárstöðvar bandaríska hersins í Óman hafi verið eyðilagðar í árásunum. Önnur ratsjárstöðin er nýtt til eftirlits á sjó og hin til loftvarnareftirlits.
Þetta er sjötta nóttin í röð sem Íranar og Bandaríkjamenn gera árásir á víxl á skotmörk í Mið-Austurlöndum. Íranar segja að 38 hafi verið drepnir og yfir 400 hafi særst í árásum Bandaríkjahers síðan 22. júní.