Erindið var tekið fyrir á fundi nefndarinnar í síðasta mánuði en að því stóðu Elín Hirst fjölmiðlakona, Páll Valsson ævisöguritari Jónasar, Kári Stefánsson læknir, Kristján Valur Ingólfsson fyrrverandi vígslubiskup, Agnar Helgason líffræðilegur mannfræðingur og Lárus Jónsson og Halldór Hilmisson kvikmyndaframleiðendur hjá Republik.
Í beiðninni er þess óskað að þjóðgarðsvörður fyrir hönd Þingvallanefndar láti opna gröf Jónasar Hallgrímssonar svo hægt sé að komast að beinunum og taka af þeim sýni af erfðaefni. Sagt er að erindið sé í tengslum við kvikmyndagerð.
Afstaða nefndarinnar var sú að hún gæti ekki veitt heimild til þess nema að fyrir lægi dómsúrskurður.