Báðar deildir brasilíska þingsins hafa samþykkt lög sem stytta fangavist Jairs Bolsonaro fyrrverandi forseta úr 27 árum niður í rétt rúm tvö.
Það þykir mikill ósigur fyrir forsetann Luiz Inácio Lula da Silva sem reyndi að beita neitunarvaldi í desember eftir að báðar deildir þingsins samþykktu lög til að milda dóminn yfir Bolsonaro.
Hann var sakfelldur í september fyrir að skipuleggja valdaránstilraun eftir ósigur gegn Lula í forsetakosningum árið 2022. Stuðningsmenn Bolsonaros ruddust inn í þinghúsið og hæstaréttarbygginguna í höfuðborginni Brasilíu stuttu eftir embættistöku Lula í janúar 2023.
Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem Lula forseti þarf að láta í minni pokann fyrir þinginu, sem ákvað á þriðjudag að hafna þeim manni sem hann tilnefndi til setu í Hæstarétti.
Lula hefur ákveðið að gefa kost á sér í forsetakosningum sem haldnar verða í haust. Hann sæti þá sitt fjórða kjörtímabil nái hann kjöri. Lula sagðist árið 2022 ætla að láta gott heita, tveimur árum síðar sagðist hann ekki geta útilokað framboð og ákvað það loks endanlega í fyrra.