Líkt og greint var frá í morgun var Margrét dæmd til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna ummæla hennar um Barböru. Þess var ekki krafist að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og þau standa því. Margrét kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“.
Margrét hefur nú stungið niður penna á Facebook, þar sem hún tjáir sig um niðurstöðu dómsins. Hún segir Jónas Jóhannsson, dómara málsins, hafa dæmt sig ranglega og að greinilega sé bannað að segja sannleikann um alvarlegt brot á starfsskyldum og siðareglum dómara á Íslandi. Málið á rætur að rekja til staðhæfinga Margrétar um að Barbara hafi átt í framhjáhaldi með öðrum dómara.
„Ísland er dapurlegt land löðrandi af spillingu og óréttlæti, þetta mál mun enda fyrir mannréttindadómstólnum, það er engin spurning,“ segir Margrét að lokum.