Á­stæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sam­bandið - Vísir

Á­stæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sam­bandið - Vísir

Á­stæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sam­bandið - Vísir

Rúm sex ár liðu milli útgáfu þriðju og fjórðu hljóðversplötunnar þeirra sem kom út á síðasta ári.

Vísir settist niður með tveimur liðsmönnum sveitarinnar í tilefni af því að fimmtán ár eru liðin frá því að platan My Head is an Animal kom hljómsveitinni á heimskortið.

Í öðrum hluta ítarlegs viðtals ræða Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson meðal annars einkalífið, kvíða sem margir tónlistarmenn glíma við og Covid-áfallið. Hér má nálgast fyrsta hluta umfjöllunarinnar.

Velgengni fyrstu plötu hljómsveitarinnar á Íslandi árið 2011 hjálpaði þeim að komast í sterka samningsstöðu gagnvart alþjóðlegum útgáfurisum sem kepptust um að ná samningi við íslensku ungmennin. 

Þannig náði Of Monsters and Men að varðveita ákveðið sjálfstæði strax frá upphafi og var My Head is an Animal endurútgefin af Republic Records sem er undir hatti Universal-risans árið 2012. 

Arnar Rósenkranz Hilmarsson, Kristján Páll Kristjánsson og Brynjar Leifsson mynda sveitina ásamt Nönnu og Ragnari.Martin

Jókst sjálfstæði þeirra enn frekar þegar þau riftu samningi sínum við útgáfufyrirtækið eftir þriðju plötuna en það er jafnframt útgáfuheimili stórstjörnunnar Taylor Swift. Nýjasta hljóðversplatan þeirra sem ber heitið All is Love and Pain in the Mouse Parade er sú fyrsta sem hljómsveitin gefur út sjálf.

Fá að vera þverhausar

Þið eruð hluti af ákveðnu viðskiptaumhverfi. Er verið að þrýsta á ykkur að gefa meira út og vera sýnilegri eða eitthvað slíkt?

Nanna: „Eins og staðan er núna, af því við erum svo sjálfstæð, þá er mjög, mjög lítill þrýstingur og við fáum bara að vera svolítið þverhausar.“

Ragnar: „En maður finnur samt að bransinn kallar á þetta. Allar tónlistarhátíðir vilja líka að þú birtir eitthvað ákveðið og maður skilur að bransinn er búinn að mótast svolítið með þessu.“ Þetta henti alls ekki öllum.

Nanna tekur undir þetta en dáist þó að yngra fólki sem þrífist vel í þessum nýja veruleika.

Nanna: „Þau kannski alast upp í þessu TikTok-umhverfi og þau skilja þetta miklu betur og þetta er hluti af því að vera skapandi. Mér finnst það alveg eiga rétt á sér en við erum einhvern veginn ekki af þeirri kynslóð.“

Ragnar: „Maður sér það þegar fólk finnur svona sína eigin leið í því og það er skemmtilegt en svo sér maður líka þegar fólk er að glíma við þetta og nær ekki að vera það sjálft.“ Hver og einn þurfi að finna sína leið og þá sé hægt að láta það virka.

Plötufyrirtæki reiða sig í dag mörg mikið á myndbandsmiðilinn TikTok, bæði til þess að markaðssetja tónlist og uppgötva nýjar stjörnur. Þá eru dæmi um að þekktir listamenn hafi amast við þessari þráhyggju útgefenda sinna.

Aðdáendur í Suður-Kóreu lögðu sig mikið fram og mættu með fána og skilaboð á íslensku. Martin

Gott fyrir aðdáendur að fá pásu frá þeim

Fleira hefur breyst á síðustu fimmtán árum og urðu til að mynda straumhvörf í tónlistarhlustun með tilkomu streymisveitna á borð við Spotify sem hafa að stórum hluta komið í stað plötusölu og ólöglegs niðurhals.

Of Monsters and Men upplifðu þessa breytingu á eigin skinni en fyrsta platan þeirra kom út um það leyti sem Spotify var að breiðast út um heiminn. Því má segja að hljómsveitin hafi rétt náð í skottið á alþjóðlegri plötusölu eins og hún var fyrir tíma Spotify en svo kom platan Beneath the Skin út í breyttum heimi árið 2015.

Ragnar: „Það er búið að vera áhugavert að ganga í gegnum þetta tímabil og sjá þetta breytast. Maður í rauninni pælir ekkert það mikið í því, maður bara aðlagast.“

Arnar Rósenkranz Hilmarsson trommuleikari bregður á leik í Gardone Riviera á Ítalíu. Martin

Nanna: „Ég er svo þakklát fyrir að ég held að við séum alltaf svolítið með gamla skólann. Við nálgumst tónlist og plötugerð frá þeim stað að við erum að gera plötur. Við erum ekki að gera lög, sem er líka allt í lagi, en það er rosalega mikið sem fólk gerir í dag út af því að það vill vera sýnilegt.

Ég held að rosalega margir tónlistarmenn, mjög skiljanlega, keyrast áfram af smá hræðslu við að vera ekki sýnilegir. Þannig að þú ert alltaf að reyna að gefa út nýtt, halda fólki og segja þeim: „Ég er hérna.“

Ég held að það sé smá prentað inn í okkur að það er allt í lagi að vera ekki alltaf sýnilegur og í raun og veru er það svolítið gott út af því að fólk þarf bara að fá pásu frá þér. Það þarf að sakna þín.“

Hún trúi því að það sé gott fyrir listamenn að gefa sér rými til þess að breytast og lifa lífinu inn á milli til þess að hafa eitthvað til að segja næst.

Margir tónlistarmenn upplifi kvíða

Ragnar segir hljómsveitina vera heppna að hafa náð að byggja upp sinn aðdáendahóp áður en þessi umbylting varð á bæði dreifingarleiðum tónlistar og samfélagsmiðlum.

„Samfélagsmiðlar voru ekki svona mikilvægur hluti þannig að við höfum kannski efni á því og getum aðeins spilað dulúðarleikinn, horfið og komið svo aftur inn því maður er kominn með ákveðinn aðdáendahóp sem er að bíða.

En maður getur ekki sett sig í þau spor núna að reyna að komast þangað, það er annar leikur.“

Sveitin kom við í Bologna á Ítalíu í júní síðastliðnum. Martin

Nanna: „Ég veit að margir díla við ákveðinn kvíða með þetta. Maður má líka alveg taka sér tíma fyrir sjálfan sig og safna aðeins í bakpokann.“

Ragnar: „Nanna á svona bakpoka sem hún geymir allar hugmyndirnar sínar í.“

Nanna: „Ég man alltaf að [tónlistarkonan] Lay Low sagði þetta við mig. Lovísa sagði mér einhvern tímann að maður þyrfti að safna í bakpokann. Svo gæti maður tekið upp úr honum þegar maður færi að semja.“

Ragnar: „Það er mjög falleg pæling.“

Mæla með því að byrja á vinskap

Það fær smá á Nönnu og Ragnar þegar þau eru spurð út í það hvernig langvarandi vinskapur þeirra þróaðist út í rómantískt samband.

Nanna: „Við bara byrjuðum saman,“ segir Nanna og hlær.

Ragnar: „Já, við bara byrjuðum saman.“

Nanna: „Það var ekki flóknara en það,“ bætir hún við brosandi.

Ragnar: „Nei, í rauninni ekki. Vilt þú segja eitthvað um það?“

Nanna: „Nei, nei, bara það.“

Þau séu búin að vera saman í fimm ár og sambandið jafngamalt og hundurinn Vofa sem liggur á sófanum fyrir aftan þau. 

Nanna: „Það var sambandsgjöfin,“ segir hún og hlær.

Brynjar, Nanna og Ragnar í Benicasim í Valensía þar sem þau spiluðu á Sansan-tónlistarhátíðinni. Martin

Þau eru sammála um að það hafi verið gott að vera búin að þróa með sér djúpa vináttu í yfir tíu ár áður en þessi kafli tók við.

Ragnar: „Ég mæli hundrað prósent með því. Það er bara geggjað og við höfum alltaf náð vel saman. Það gengur vel núna ef þú ert að pæla í því,“ bætir hann við og glottir.

Lítið hefur borið á ástarjátningum þeirra á samfélagsmiðlum og kaus Nanna að upplýsa ekki um nafn huldumannsins í viðtali við Auðun Blöndal í þætti af Tónlistarmönnunum okkar sem kom út árið 2023.

Ég spyr af því að þið hafið kannski ekkert mikið verið að auglýsa þetta.

Nanna: „Við erum bara líka þannig fólk, ég veit það ekki. Maður svona þurfti að læra inn á það einhvern veginn að tala um tónlistina og vera að útskýra hana sem í sjálfu sér er ótrúlega skrýtið og smá erfitt að vera einhvern veginn að kryfja hana.“ Hún hafi yfirleitt haft minni áhuga á því að ræða einkalíf sitt.

Ragnar: „Við fáum ekki mikið út úr því að deila svona hlutum. Það er nógu klikkað að deila tónlist.“

Finnst ykkur mikilvægt að halda einhverju fyrir ykkur? Það virðist vera smá pressa á tónlistarmönnum í dag að vera áberandi á samfélagsmiðlum, vera aðgengilegir og deila jafnvel persónulegum hlutum.

Ragnar: „Já, það er einhvers konar val. Það er bara þannig sem við tikkum einhvern veginn. Við finnum ekki þessa þörf. Maður hugsar: „Af hverju vill einhver vita eitthvað um mann á þennan hátt ef hann þekkir mann ekki?“ Við erum í rauninni alveg ótrúlega lélegar stjörnur (e. celebrities). Við höllum okkur rosalega lítið inn í það og líður bara vel með það.“

Hljómsveitin á góðri stundu í Los Angeles þar sem þau fylltu The Palladium. Martin

Nanna: „Ég er alveg fræg fyrir það að vera ótrúlega léleg í að deila dóti.“ Til að mynda hafi hún ítrekað lent í því að móðir hennar heyri það fyrst frá öðrum hvað Nanna hyggist taka sér fyrir hendur.

„Mér finnst svo erfitt að tala um mig. Í alvörunni. Þegar ég er að tala við vini mína og nýtt fólk þá spyr ég bara. Þetta sem við erum að gera núna þar sem þú ert að spyrja okkur er alveg smá úr karakter. Mig langar frekar að vita hvað er að frétta af öðrum,“ bætir hún við áður en þau beina bæði sjónum sínum að blaðamanni.

Ragnar: „Hvernig gengur þér?“

Nanna: „Já, hvernig gengur þér?“

Hér er undirritaður fljótur að skipta yfir í næsta umræðuefni enda valdi hann sér þetta hlutverk af ástæðu.

Þriðja platan umdeildari en þær fyrri

Nanna ræddi áður hvernig hljómsveitin hafi aðeins breytt um takt á annarri plötu sinni Beneath the Skin og valið að fara meira inn á við eftir löng og ströng tónleikaferðalög.

Á Fever Dream sem kom út árið 2019 færði sveitin sig svo enn fjær því þjóðlagahljóði sem var áberandi á fyrri plötunum og fór meira í áttina að einhvers konar indípopprokki.

Þessi stefnubreyting varð til þess að þriðja hljóðversplatan varð aðeins umdeildari meðal hlustenda en þær fyrri.

Finnið þið fyrir umræðunni á þessum tíma og hefur hún einhver áhrif á ykkur?

Nanna: „Bæði og. Málið er að ég skil alveg af hverju sumir sem voru búnir að hlusta á okkur lengi heyrðu þriðju plötuna okkar og hugsuðu: „Hvað eruð þið eiginlega að gera?“

En málið er að það var ógeðslega gaman að gera þá plötu og gaman að fara í þær pælingar. Sú plata var rosalega mikilvæg fyrir plötuna sem við vorum að gefa út, til dæmis út af því að hún kenndi okkur líka hvað við fíluðum og hvað við fíluðum ekki. Þetta er bara mikilvægur hluti af því að vera tónlistarmaður og finna hljóðið sitt.“

Ragnar: „Maður bara þróast og þroskast og deilir því á sama tíma.

Svo er það að við fengum rosalega mikið af nýjum aðdáendum og uppáhaldslög margra sem maður hittir eru á þessari plötu. Það er svo svalt að gera eitthvað nýtt og þá færðu einhverja sem voru ekkert búnir að hlusta á þig. Ég hef alltaf fengið staðfestingu á því að það að prófa eitthvað nýtt er alltaf gott.“

„Fyrir mér er þetta mjög eðlislæg þriðja plata fyrir okkur. Hún þjónaði miklum tilgangi þegar kom að því hvernig við röðuðum hlutum upp fyrir nýjustu plötuna.“

Ragnar og Brynjar í Bangkok. Martin

Ragnar bætir við að það sé í lagi ef fólk sé ekki hrifið af Fever Dream. Bæði kannast þau við að hafa upplifað vonbrigði þegar tónlistarfólk sem þau dýrka breytti um stefnu.

Ragnar: „Af hverju gerðirðu ekki bara plötu sem ég fíla, sem hlustandi, ha? Ég fílaði hitt stöffið. Af hverju gerðirðu ekki bara aftur þannig fílið þitt?“ segir hann með leikrænum tilþrifum.

„Ég skil alveg tilfinninguna. Þetta er hræðileg tilfinning en þetta er bara einhver vegferð fyrir listamanninn.“

Tóku á sig stórt fjárhagslegt högg

Fever Dream kom út árið 2019 en eftir um hálft ár af tónleikahaldi þurfti hljómsveitin að pakka saman vegna heimsfaraldurs Covid-19.

Nanna: „Þetta var ógeðslega skrýtið. Við vorum að taka Asíutúr og við þurftum meira að segja að fara fyrr heim þegar Raggi varð svo veikur og fór á spítala.

Þannig að við þurftum að fljúga heim og ætluðum bara að endurskipuleggja allt en svo gátum við það aldrei. Fólk var búið að kaupa miða á tónleika og kannski flug og alls konar.

Við vorum líka búin að ráða fullt af fólki í vinnu og búin að setja mikinn tíma og vinnu í að búa til sýningu (e. show) á þessum tíma. Fever Dream var svo mikil mikil sprenging. Það var rosalega flottur túr fram undan, rosalega mikið af tónlistarhátíðum og rosa mikið af dóti sem maður var búinn að hlakka til að gera.“

Þau hafi verið búin að leggja mikið í að hanna sjónarspil með sýningahönnuðum sem þau hafi verið orðin mjög spennt fyrir.

„Og sú sýning varð aldrei. Við vorum með alls konar myndefni, við vorum með skjái með fullt af einhverri grafík og það varð aldrei og mun aldrei verða,“ segir Nanna en útilokar ekki að það verði bætt úr þessu síðar. „En þetta var svo mikið batterí.“

Þau hafi verið búin að láta forrita sérhannaða ljósasýningu þá en farið í þveröfuga átt í tónleikaferðalaginu núna. Allt hafi verið strípað niður og spilamennskan látin njóta sín.

„Þetta er alveg andstæðan við það sem við vorum að gera síðast. Kannski langar okkur að gera þetta einhvern tímann aftur en eins og staðan er núna þá erum við spenntari fyrir því að stinga bara í samband og spila.“

Nanna segir að þetta hafi eðlilega verið fjárhagslegt högg fyrir hjómsveitina líkt og fyrir aðra listamenn sem ætluðu að spila á tímum heimsfaraldurs.

„Þú treystir á ákveðna innkomu. Eins og þessir túrar eru þá ertu oft að fara af stað og það er ekki endilega það sem þú færð mest borgað fyrir. Svo ertu að fara á þessar tónlistarhátíðir og seinni hlutann og þá fer þetta svolítið að koma saman. Það er svo mikill startkostnaður.“ 

Hann hafi verið hár í tilfelli Fever Dream í ljósi áðurnefnds umfangs.

Vínylplötur áritaðar í Kingston í Bretlandi en sveitin hóf tónleikaferðalag sitt í fyrra á því að spila í fjölda plötuverslana í Bretlandi.Martin

Mikilvægt að hafa bæði

Nanna segir að það skipti hljómsveitina máli að geta náð sér niður á Íslandi á milli langra og strangra vinnutarna erlendis en öll eru þau búsett hér á landi. 

Í þetta skipti hafi þau tekið sér styttri tarnir en oft áður en samt sem áður geti verið erfitt að rífa sig aftur upp og fara í fjörið.

„Núna erum við bara búin að túra þetta síðan í október í fyrra. Þetta er búið að vera alveg geggjaður túr og þetta tónleikaferðalag með þessa plötu er búið að vera að mínu mati besta tónleikaupplifunin.

En það kemur alveg tímapunktur eins og núna þar sem við erum búin að vera heima í næstum því mánuð og maður svona sest inn í ákveðnar rútínur og það er einhvern veginn að koma haust og ég er svo mikið haustbarn. Þá langar mann bara að vera í kósí hér.“

Þeim finnist það mikilvægt að geta tekið sér frí frá lífi tónlistarstjörnunnar og átt rólegt líf heima á Íslandi.

„Mér finnst það vera algjör lúxus að geta svona hoppað á milli hlutverka og geta fengið svo mikla útrás og útopnun úti og koma síðan heim og kunna varla mannleg samskipti, vera bara svolítið skrýtinn,“ bætir Nanna við og hlær.

#fyrir #fóru #ástæða #þau #því


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262943590d/a-staeda-fyrir-thvi-ad-thau-foru-ekki-hatt-med-sam-bandid

📰 Aðrar fréttir

Hverjum gagnast vælutalið?
📅 05.10.2026 👁️ 0
Hverjum gagnast vælutalið?
Hverjum gagnast vælutalið? Fréttin5. október 2026Björn Bjarnason, Innlent, StjórnarfarLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Að kalla gagnrýni væl s...
Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið - Vísir
Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í slysinu sem varð rétt fyrir hádegi á Laugardag á þjóðvegi eitt á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl....
Litlu mátti muna fyrir Hrund og fjölskyldu þegar orlofsíbúð sprakk í Aþenu - „Þetta var einum degi frá því að vera við“
📅 05.10.2026 👁️ 0
Litlu mátti muna fyrir Hrund og fjölskyldu þegar orlofsíbúð sprakk í Aþenu - „Þetta var einum degi frá því að vera við“
Afreksíþróttakonan Hrund Scheving hélt í september til Grikklands til að keppa á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum. Hana óraði þó ekki fyrir ...
Ögur­stund í kjara­samninga­málum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ögur­stund í kjara­samninga­málum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.  Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir ...
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði
📅 05.10.2026 👁️ 0
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði Fréttin5. október 2026InnlendarLeave a Comment Loftmynd af þurrvöruskipinu Razoni, sem flutti...
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Val­höll“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Val­höll“ - Vísir
„Ég staðfesti þetta. Davíðstíminn – sjálfstæð saga lands og leiðtoga. Þetta er 490 síðna bók, „ballanseruð“ frásögn af þessum valdatíma þar sem rauði ...
Flydubai co-pilot planned to crash plane into airport, reports suggest
📅 05.10.2026 👁️ 0
Flydubai co-pilot planned to crash plane into airport, reports suggest
The Omani national was a "lone wolf" extremist, according to the reports.
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu Fréttin5. október 2026Fjölmiðlar, InnlentLeave a Comment Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Jakob Bjar...
Ekki fleiri kynferðisbrot í fimm ár
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ekki fleiri kynferðisbrot í fimm ár
Lögreglu bárust rúmlega fjórðungi fleiri tilkynningar um kynferðisbrot fyrstu sex mánuði ársins en á fyrri hluta árs í fyrra. Ef litið er til meðaltal...
Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina - Vísir
Afhending verðlaunanna fór fram í salnum Ægi 220 í Hafnarfirði við hátíðlega athöfn á laugardag en Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður, gítarleikari ...
Jewish Greens chair says she could leave party over 'Zionism is racism' motion
📅 05.10.2026 👁️ 0
Jewish Greens chair says she could leave party over 'Zionism is racism' motion
The motion, which has divided senior party figures, backs a "single democratic Palestinian state in all of historic Palestine".
Ungmennum líður betur í skólanum og þau neyta síður áfengis
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ungmennum líður betur í skólanum og þau neyta síður áfengis
Farsældarvísar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar gefa til kynna að fleiri grunnskólanemum líði vel í lífi og skóla en áður. Farsældarvísarnir eru hluti...
Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem tekin verður til aðalmeðferðar á föstudaginn, segir að maðurinn sé ákærður fyrir líkamsárás og hótun með því að hafa veist að ...
Stofnun sem heiðrar leiðtoga Hizbollah setur Þorgerði Katrínu á áróðursskilti skilti í Íran rétt fyrir komu Marco Rubio
📅 05.10.2026 👁️ 1
Stofnun sem heiðrar leiðtoga Hizbollah setur Þorgerði Katrínu á áróðursskilti skilti í Íran rétt fyrir komu Marco Rubio
Mynd og ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa verið sett á risaskilti í Teheran í Íran sem hluti af opinberri áróðursherferð ...
Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi
📅 05.10.2026 👁️ 1
Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi
Hlutabréf í Alvotech hafa hækkað um tæp sjö prósent í verði í dag. Fyrirtækið tilkynnti í morgun að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefði veit...
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði
📅 05.10.2026 👁️ 1
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði Banda­ríski vís­inda­mað­ur­inn Karl Deiss­eroth og þýsku vís­inda­menn­irn­ir Peter Hegemann ...
Vikan á Instagram: „Önnur okkar bítur“
📅 05.10.2026 👁️ 1
Vikan á Instagram: „Önnur okkar bítur“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu
Einelti meðal yngri grunnskólanemenda hefur aukist ár frá ári undanfarin ár. Nú segjast 22 prósent nemenda í 4. og 5. bekk hafa orðið fyrir einelti, s...
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“ - Vísir
Dorrit var gestur Mörtu Maríu Winkel í hlaðvarpinu Marta María býður heim þar sem þær fóru um víðan völl og ræddu um æsku Dorritar, samband hennar og ...
Bandarískir og þýskir vísindamenn hljóta Nóbelsverðlaun í læknisfræði
📅 05.10.2026 👁️ 1
Bandarískir og þýskir vísindamenn hljóta Nóbelsverðlaun í læknisfræði
Bandaríski geð- og taugasjúkdómalæknirinn Karl Deisseroth og þýskir samstarfsmenn hans, Peter Hegemann og Georg Nagel, hlutu í dag Nóbelsverðlaun í læ...
Vill breyta um­deildum gatna­mótum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Vill breyta um­deildum gatna­mótum - Vísir
Í fyrrasumar voru gerðar umfangsmiklar breytingar við fimm gatnamót Höfðabakka til að bæta umferðaröryggi og aðgengi vegfarenda. Meðal annars voru svo...
Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld
📅 05.10.2026 👁️ 1
Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld
Stjórn VR ætlar í kvöld að óska eftir heimild til að segja upp kjarasamningum ef ekkert breytist í samskiptum þeirra og Samtaka atvinnulífsins á næstu...
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár sagt upp störfum
📅 05.10.2026 👁️ 1
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár sagt upp störfum
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár hefur verið sagt upp störfum. Hluti starfsfólksins fær starf hjá öðrum hótelum á vegum Íslandshótela.Davíð Torfi ...
Barns­faðir Gypsy Rose fannst látinn - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Barns­faðir Gypsy Rose fannst látinn - Vísir
Ken Urker átti 34 ára afmæli þann 1. október þegar hann fannst látinn á heimili sínu í Louisiana-fylki. Orsök andlátsins liggur ekki fyrir en Gypsy Ro...
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ - Vísir
Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Rætt var við Sigríði og Pawel í ...
Nobel Prize 2026 awarded for showing how nerve cells shape feelings
📅 05.10.2026 👁️ 1
Nobel Prize 2026 awarded for showing how nerve cells shape feelings
US psychiatrist and neurologist Karl Deisseroth and his German colleagues Peter Hegemann and Georg Nagel have been awarded for their work.
Nobel Prize 2026 awarded for showing inner workings of the brain
📅 05.10.2026 👁️ 0
Nobel Prize 2026 awarded for showing inner workings of the brain
US psychiatrist and neurologist Karl Deisseroth and his German colleagues Peter Hegemann and Georg Nagel have been awarded for their work.
Sjaldséð mótmæli í Moskvu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Sjaldséð mótmæli í Moskvu
Um 60 mótmælendur voru handteknir í Moskvu í gær þegar um 2.000 manns komu saman á vegum Kommúnistaflokks landsins. Í fyrstu var efnt til samkomu til ...
Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog - Vísir
Þær hvetja fólk sem er með verkefni í huga, stórt eða smátt, til að nýta tækifærið og koma við. Þar gefst gestum kostur á að ræða hugmyndir sínar við ...
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
📅 05.10.2026 👁️ 2
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir háa skattlagningu á áfengi hér á landi og spyr hvaða rök séu fyrir því að skattar...
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
📅 05.10.2026 👁️ 2
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
„Við höfum bara ekki gefið eitt né neitt út um þetta mál heilt yfir,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuð...
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
Vísindamennirnir þrír fá verðlaunin fyrir uppgötvun sína á ljósstýrðri erfðatækni (e. optogenetics). Í tilkynningu nefndarinnar er því lýst sem aðferð...
Hálkublettir að hausti
📅 05.10.2026 👁️ 1
Hálkublettir að hausti
Hálkan hefur snúið aftur og er ráðlegt fyrir bílstjóra að huga að henni á nokkrum vegum.Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrek...
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
📅 05.10.2026 👁️ 1
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll Laugaból Jörðin Laugaból í Mosdal við Arnarfjörð í Ísafjarðarbæ hefur verið sett á sölu. Ásett verð er...
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
Embættismenn bandaríska varnarmálaráðuneytisins staðfestu í gær að vélarnar, sem taldar eru vera tólf B-1 sprengjuflugvélar, hefðu verið fluttar aftur...
Why has Spain's PM called a snap election?
📅 05.10.2026 👁️ 2
Why has Spain's PM called a snap election?
A series of measures to tackle the housing crisis were defeated in parliament on Friday
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlau...
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
📅 05.10.2026 👁️ 3
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
„Það varð ákveðinn trúnaðarbrestur sem varð til þess að við gátum ekki haldið áfram. Þetta er leiðinleg staða,“ segir Svavar Grétarsson, oddviti Samfy...
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
📅 05.10.2026 👁️ 3
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
The cost of a new fixed-rate mortgage has been rising in recent weeks as lenders face higher costs.
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
📅 05.10.2026 👁️ 2
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
„Það sem við erum að gera er í sjálfu sér ekkert merkilegt en ferðamenn hafa eimitt áhuga á því sem okkur finnst hversdagslegt,“ segir Hrafnhildur Guð...
Spain's Prime Minister Pedro Sánchez calls early election
📅 05.10.2026 👁️ 0
Spain's Prime Minister Pedro Sánchez calls early election
Sánchez says Spain will head to the polls on 29 November after recent defeats on measures aimed at addressing the country's housing crisis.
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
Andrew var handtekinn snemma morguns þann 19. febrúar 2026 á heimili sínu í Sandringham-höll. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu á heim...
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
📅 05.10.2026 👁️ 3
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
Mestu rigningartíð sem heimildir eru til um í Tókýó, höfuðborg Japans, er lokið. Hún stóð í 37 daga, lengur en nokkru sinni fyrr, og úrkoman var þrefö...
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
📅 05.10.2026 👁️ 3
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
Alvotech hefur fengið samþykktan viðauka við markaðsleyfi á Bandaríkjamarkaði fyrir AVT02, sem er hliðstæða við Humira-líftæknilyfið. Í tilkynningu fr...
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
📅 05.10.2026 👁️ 3
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
Bandaríski faðirinn Edward Gillen, 59 ára, segist hafa misst sjónina varanlega eftir að hafa notað Ozempic. Hann hefur höfðað mál gegn framleiðanda ly...
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
Meirihlutinn sprakk í gær en engar nánari skýringar hafa fengist á því hvers vegna samstarfi flokkanna lauk.  Bæjarfulltrúum barst póstur frá forseta ...
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
📅 05.10.2026 👁️ 3
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck segir að krakkarnir hans hafi engan áhuga á sambandsráðum hans.Hann sagði í spjallþætti Jimmy Kimmel að hann hef...
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
📅 05.10.2026 👁️ 2
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
Dómstóll í Lundúnum tekur á fimmtudag fyrir mál Andrew Mountbatten-Windsor gegn bresku lögreglunni vegna húsleitar sem var gerð á heimili hans í febrú...
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
📅 05.10.2026 👁️ 3
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
Íslenskur karlmaður sem grunaður er um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. RÚV greinir ...
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
📅 05.10.2026 👁️ 3
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn konu um greiðsluþátttöku í lækniskostnaði erlendis, vegna fylgikvi...