Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, snýr aftur til starfa á Alþingi á morgun eftir að hafa verið í fríi frá störfum í tæpt ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Alþingis og víkur þá varamaður hennar, Sigurður Örn Hilmarsson, af þingi.
Áslaug Arna hélt til New York í fyrrasumar til að stunda nám við Columbia-háskóla þaðan sem hún útskrifaðist á dögunum. Hún hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 2016 og er í hópi reynslumestu þingmanna flokksins.
Hún tapaði naumlega fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í formannskjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í fyrra. Fékk Áslaug Arna 49,09 prósent atkvæða gegn 50,11 prósentum Guðrúnar.