Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn, hefur þegið boð Hildar Björnsdóttur um formennsku í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook.
„Það vakti athygli er nýr meirihluti D, C og B var myndaður í borgarstjórn 27. maí að borgarstjóri sagðist myndu gera það að tillögu sinni að oddviti Miðflokksins yrði kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Sýndist sitt hverjum um þessa tilhögun og ég taldi rétt að íhuga málið vandlega,“ skrifar Ari.
Hans niðurstaða sé að hann vilji ekki skorast undan þessu verkefni. „Þar vegur þyngst að við í Miðflokknum buðum okkur fram til að þjóna Reykvíkingum og formennska í OR veitir tækifæri til að setja mark sitt á stefnumörkun sem skiptir miklu fyrir alla íbúa borgarinnar og miklu fleiri.“
„Gríðarleg tækifæri eru til staðar“
„OR er eitt mikilvægasta innviðafyrirtæki landsins og leikur lykilhlutverk í uppbyggingu samfélagsins. Kjarni starfseminnar er að sjá samfélaginu fyrir heitu og köldu vatni, rafmagni og fráveitu á sem hagstæðustum kjörum. Gríðarleg tækifæri eru til staðar í aukinni orkuöflun og nýrri tækni sem þarf að nýtast almenningi og atvinnulífi til bættra lífskjara á komandi árum,“ skrifar Ari.
Hildur Björnsdóttir, nýkjörinn borgarstjóri Reykjavíkur, tilkynnti að hún hefði boðið Ara stjórnarformennskuna sama dag og nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar var kynntur. Hún sagði það ekki vera sárabætur vegna þess að Miðflokkurinn rataði ekki inn í meirihlutann.
Stefnt að því að draga sig úr verkefnum á borð við Carbfix og Ljósleiðarann
Hildur vill leggja áherslu á að hefja söluferli á Ljósleiðaranum og Carbfix og að hennar mati sé Ari besti maðurinn til að ráðast í þau verkefni.
Ari segir að áherslur Miðflokksins varðandi Orkuveitu Reykjavíkur og orkumálin séu honum veganesti inn í þetta verkefni. Þar sé lögð áhersla á að nýtingar- og umráðaréttur orkulinda sé hjá þjóðinni. Ari nefnir að stefnt sé að því að draga sig úr verkefnum á borð við Carbfix og Ljósleiðarann.
„Það er og verður mikilvægasta hlutverk stjórnar að tryggja að þau verðmæti sem eru fólgin í Orkuveitunni þróist áfram með ábyrgum hætti eigendum og samfélaginu til hagsbóta. Ég hlakka til samstarfsins við stjórn, forstjóra, starfsfólk, eigendur og aðra hagaðila við að byggja áfram upp öfluga Orkuveitu sem þjónar samfélaginu í dag og skapar verðmæti til framtíðar.“
Ari tekur við af Gylfa Magnússyni.