Smartland greindi fyrst frá kaupunum.
Um er að ræða einbýlishús á einni hæð, sem var byggt árið 1980, með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, tvöföldum bílskúr og skjólsælum garði með verönd. Húsið er á góðum stað því stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaugina og líkamsrækt, verslanir og útivistarsvæði.
Tinna og Ari hafa verið saman síðan 2023, eru ástfangin upp fyrir haus og ferðuðust nýverið saman til Ítalíu þar sem þau fögnuðu fertugsafmæli Tinnu.
Myndir af fasteigninni má sjá hér að neðan: