Rússar gerðu drónaárásir á sjö staði í Rússlandi í nótt. Árásirnar ollu töluverðum skemmdum og nokkrir særðust. Úkraínumenn segjast hafa skotið niður 102 af 117 drónum Rússa í nótt.
Umfangsmestu árásirnar voru í borginni Sumy í norðausturhluta Úkraínu. Minnst níu sprengingar heyrðust víða um borgina og einn dróninn hæfði íbúðablokk. Það kviknaði í þremur íbúðum en eldurinn var þó fljótt slökktur. Einn særðist. Skotmörkin voru borgaralegir innviðir og byggingar.
Þrír særðust þegar rússneskur dróni hæfði íbúðarhús í Mykolaiv í nótt. Tveir bílar og 14 íbúðir skemmdust af völdum bæði braks og sprengjuhöggs. Vitalij Kim, yfirmaður umdæmisskrifstofu hersins í Mykolaiv, sem tók myndirnar hér fyrir ofan, segir að minnst fimm hafi særst í héraðinu undanfarinn sólarhring.
Drónaárás í Boryspil í Kyiv-héraði í gærkvöld varð til þess að eldur kviknaði á um 2.000 fermetra svæði. Slökkviliðsmenn notuðu froðu til að slökkva eldinn. Engar fregnir bárust af slysum á fólki. Í tilkynningu frá almannavörnum í Úkraínu segir að árásin hafi beinst að innviðabyggingu, án þess að það sé útskýrt nánar hvers konar innviðir þar eru.
Úkraínumenn ráðast á Rússa á þjóðhátíðardegi Rússa
Úkraínumenn gerðu í nótt drónaárás á borgina Nizhnekamsk í Tatarstan-héraði sem er í um 1.600 kílómetra fjarlægð frá Úkraínu. Dróninn hæfði olíuhreinsunarstöð og verksmiðju sem framleiðir íhluti í vopn. Borgarstjóri Nizhnekamsk segir að dróni hafi einnig hæft íbúðarhús.
Svo vill til að þjóðhátíðardagur Rússa er í dag. Hátíðarhöldum í Nizhnekamsk í tilefni dagsins var aflýst, auk þess sem aðalhátíðarhöldin sem áttu að vera á Rauða torginu í Moskvu verða innan dyra.