Úkraínuher hefur síðustu vikur reynt að einangra Krímskaga sem Rússar hertóku og innlimuðu 2014 og orðið nokkuð ágengt. Herinn hefur gert árásir á brýr og vegi sem liggja þangað og valdið röskun á birgðaflutningum.
Yfirmaður drónasveitar flota Úkraínuhers segir að herinn hafi síðustu daga gert tugi árása á flutningaskip á Svartahafi undan ströndum Krímskaga. Úkraínsk stjórnvöld segja skipin flest hluta af skuggaflota Rússa. Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum að takmarkanir hafi verið á siglingum á Azovhafi síðan fyrir helgi vegna árásanna. Helstu kornhéruð Rússlands, Rostov og Krasnodar, liggja að hafinu sem er mikilvæg flutningaleið fyrir kornútflutning Rússa.
Úkraínumenn hafa einnig gert árásir á allar stærstu olíuhreinsistöðvar í Rússlandi síðustu mánuði með þeim afleiðingum að eldsneytisskortur er kominn upp í nær öllum héruðum landsins.
„Bensínkrísan í Rússlandi fer harðnandi, eins og sanngjarnt er fyrst Pútín neitar að hætta stríðinu,“ sagði Volodymyr Zelensky, Úkraínuforseti, í ávarpi á dögunum. „Við lögðum fram tillögur um skref í friðarátt og njótum stuðnings bandamanna um víða veröld sem og fólks í kringum Pútín, sem vill frið.“
Sums staðar er bensíni skammtað og langar raðir eru við bensínstöðvar. „Í gær þurfti ég að bíða í sex tíma. Sumar bensínstöðvar takmarka kaup við 20 eða 50 lítra,“ segir leigubílstjóri í Moskvu.