Leiðtogar víða í Evrópu hafa fordæmt árás Rússa í Kyiv í nótt, einkum þar sem Hellaklaustrið, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, skemmdist mikið. Ellefu voru drepnir í árásum í Úkraínu í nótt, þar af fimm í Kyiv.
Árásirnar voru gerðar í nótt, en að sögn úkraínska flughersins skutu Rússar 70 eldflaugum og 611 drónum að Úkraínu, flestum að höfuðborginni Kyiv. Hellaklaustrið, Pechersk Lavra, hefur verið meðal helstu miðstöðva rétttrúnaðarkirkjunnar frá stofnun árið 1051.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu skoraði á G7-ríkin að setja meiri þrýsting á stjórnvöld í Rússlandi en fundur þeirra hófst í dag. „Þetta er einn alvarlegasti glæpur Rússa gegn kristinni menningu fram að þessu,“ sagði Zelensky á samfélagsmiðlum í morgun. Hann sagði síðan eftir að hafa séð verksummerki sjálfur að tveimur rússneskum drónum hefði verið skotið vísvitandi á klaustrið.
Árásin hefur vakið hörð viðbrögð víða. Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir ljóst að Rússar hafi engan hug á að ljúka stríðinu. „Árásirnar drápu enn á ný óbreytta borgara og skemmdu sögulegt klaustur í Kyiv, sem er bein árás á 1000 ára arfleifð Úkraínu. Árásin sýnir einnig fáránleika þeirrar staðhæfingar Rússa að þeir séu verndarar kristni.“
Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar tók undir þetta. „Þetta sýnir lítinn vilja af hálfu Rússa til að gera neitt til að draga úr átökum og leysa stríðið,“ sagði hann við AFP-fréttastofuna.
Emmanuel Macron forseti Frakklands sagði á X að ekkert réttlætti þessa árás á alþjóðlega arfleifð.
UNESCO fordæmdi einnig árásina enda klaustrið á heimsminjaskrá. Stofnunin óttast verulegar skemmdir. „UNESCO fordæmir árásir gegn menningareignum, menntastofnunum, nemendum, kennurum og starfsmönnum fjölmiðla sem njóta verndar samkvæmt alþjóðalögum.
Rússar segjast hafa gert stórar árásir á hernaðarmannvirki í Kyiv og víðar. Þeir neituðu því hins vegar að hafa skotið vísvitandi á klaustrið. Úrelt flaug úr bandaríska Patriot-loftvarnakerfinu hafi hæft það.