Anthony Karl spilaði lengst af með Val en reyndi líka fyrir sér í fótboltanum í Noregi og spilaði um tíð með landsliðinu. Hann starfar nú sem viðskiptastjóri hjá Landsbankanum. Eva er hjúkrunarfræðingur á hjartadeild Landspítalans.
Anthony og Eva keyptu eignina árið 2018 og tóku íbúðina algjörlega í gegn þar sem skipt var um allar innréttingar, hurðir, glugga og gólfefni og baðherbergi endurnýjað í íbúðinni ásamt breytingum á skipulagi.
Drápuhlíð 43 var löngum kallað kennarahúsið en það var byggt árið 1957 af Pálma Hannessyni sem þá var rektor Menntaskólans í Reykjavík. Að neðan má sjá myndir af eigninni og áhugasamir geta kynnt sér hana nánar hér.