Hjörtur Guðnason, grafískur miðlari og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar, lést 10. júní sl. á líknardeild Landspítalans, á 76. aldursári.
Hjörtur fæddist 16. ágúst 1950. Foreldrar hans voru Guðni Þórarinn Jónsson húsgagnasmiður og Halldóra Áslaug Geirsdóttir húsfreyja.
Hjörtur lauk burtfararprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1975 og sveinsprófi í offsetljósmyndun, litgreiningu og plötugerð ári síðar. Meistararéttindi fékk hann 1980.
Á námsárunum vann Hjörtur í Prentþjónustunni en lauk náminu í Prentmyndastofunni, þar sem hann vann til 1991, síðast sem verkstjóri. Hann vann sem hönnuður hjá Iceland Review frá 1991 til 1995. Starfaði með eigið fyrirtæki um tíma og kenndi á námskeiðum hjá Prenttæknistofnun. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra stofnunarinnar í ársbyrjun 1996 og gegndi því til september 2001 þar sem hann jafnframt starfaði fyrir Margmiðlunarskólann.
Eftir það vann Hjörtur m.a. hjá Prentmeti, Gutenberg, Think og loks Ísafoldarprentsmiðju frá 2008 til starfsloka í desember 2019.
Hjörtur gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum fyrir prentiðnaðinn og vann ötullega að menntamálum greinarinnar, sat í sveinsprófsnefnd í skeytingu og prentsmíði um árabil og tók þátt í gerð sveinsprófa. Hann var sérfræðingur í prentsmíði og grafískri miðlun á vettvangi Worldskills og Worldskills Europe frá 2011 til 2016 og fór utan með keppendur fyrir Íslands hönd.
Hann var einn af stofnendum og sat um árabil í stjórn Prentsöguseturs. Einnig sat hann í stjórn Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík, ritari um árabil og varaformaður 2018 til 2026. Þá ritaði hann fjölda greina í Prentarann, tímarit Félags bókagerðarmanna, nú GRAFÍU.
Eftirlifandi eiginkona Hjartar er Guðrún Jóna Valgeirsdóttir, f. 1953. Börn þeirra eru Harpa Guðríður, f. 1972, Valgeir Þór, f. 1978, og tvíburarnir Andri Örn og Sindri Már, f. 1990. Barnabörnin eru sjö talsins.
Útför Hjartar fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn
26. júní kl. 15.