Uppbygging laxeldisiðnaðar í Seyðisfirði snýst um fyrirtækjarekstur – ekki vöxt samfélagsins að mati formanns félagsins Vár sem beitir sér gegn komu laxeldis í fjörðinn.
Á föstudag var greint frá því að fyrirtækið Kaldvík hefði fengið rekstrarleyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Áform um eldi á svæðinu hafa mætt talsverðri andstöðu Seyðisfirðinga.
Umræður mynduðust um leyfið á Facebook-síðu Vár - Félags um vernd fjarðar í gær. Maður, sem titlaði sig sem starfsmann Kaldvíkur á Facebook, skrifaði þar eftirfarandi:
„Sama fólkið var á móti Norrænu, svo Síldarvinnslunni og skemmtiferðaskipunum. Nú er það fiskeldið. Á sama tíma getur þetta fólk ekki rekið sjoppu og tæp 90% íbúa eru á bótum eða á launum hjá hinu opinbera. Fiskeldið er augljóslega ekki vandamálið.“
Athugasemdinni hefur síðan verið eytt. Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár, segir ummælin dæma sig sjálf.
„Þetta eru ótrúlega sorgleg ummæli og sýna einmitt hvað það er lítill skilningur. Það að segja að 90% íbúa séu á bótum er náttúrlega bara algjör hneisa og niðurlægjandi,“ segir hún.
Fréttastofa sendi Kaldvík fyrirspurn vegna málsins. Fyrirtækið segir manninn ekki hafa starfað hjá því í nokkur ár.
„Ummælin endurspegla á engan hátt skoðanir Kaldvíkur eða þau gildi sem félagið stendur fyrir. Kaldvík leggur áherslu á virðingu og uppbyggilegt samtal við íbúa og hagsmunaaðila í þeim byggðarlögum þar sem félagið starfar, og tekur ekki undir ummæli af þessu tagi,“ segir í svari Kaldvíkur
Samskipti Kaldvíkur og Seyðfirðinga
Benedikta Guðrún segir Kaldvík ekki hafa átt formlegt samtal við Seyðfirðinga þrátt fyrir andstöðu þeirra við komu laxeldis. Það boðaði þó til samráðsfundar með íbúum meðan á leyfisveitingarferlinu stóð.
„Þeir hafa haldið einn fund. Þeir fylltu hús og mjög margir voru óánægðir á þeim fundi. En það var bara einhliða fundur frá þeim þar sem þeir meðal annars lofuðu því að nú myndu þeir nú aldeilis geta farið að bjarga þessu samfélagi. En staðan er þannig að það þarf ekki að bjarga Seyðisfirði. Seyðisfjörður getur algjörlega blómstrað og vaxið á sínum forsendum án þess að fórna náttúru og lífríki,“ segir Benedikta.
Kaldvík segist hafa átt í góðum samskiptum við sveitarfélagið.
„Kaldvík leggur ríka áherslu á opið og gagnsætt samtal við íbúa fjarðanna og aðra hagsmunaaðila sem félagið starfar með, enda er það félaginu mikilvægt að sátt ríki um starfsemina,“ segir í svari Kaldvíkur.
„Þegar félagið auglýsti störf laus á Seyðisfirði sóttu margir Seyðisfirðingar um störf hjá félaginu og almennt var því vel tekið og því er mikilvægt að umræðan njóti sanngirni.“
Ólík sjónarmið
Í svari Kaldvíkur segist fyrirtækið hlusta á ábendingar og sjónarmið Seyðfirðinga. Það vonist eftir að eiga gott og heiðarlegt samstarf við bæjarbúa.
„Þetta snýst ekki um samfélagið og að byggja upp eitthvað samfélag, eins og þetta horfir við mér. Þetta snýst fyrst og fremst um að fá þessi leyfi,“ segir Benedikta.
Félagið hafi um leið og leyfið var í höfn lagt áherslu á að kynna það í Kauphöllinni frekar en fyrir bæjarbúum.
„Öll áhersla fyrirtækisins er svo augljóslega á að ná þessum leyfum í gegn. Þetta eru fá störf og ég trúi því varla þegar fyrirtæki hefur staðið sig svona illa, fjárhagslega, að það sé verið að senda þennan björgunarhring til þess á þessum tímapunkti,“ segir hún.