Dómsmálaráðherra og hennar fólk í ráðuneytinu kom á Selfoss og hitti Grím Hergeirsson, lögreglustjóra á Suðurlandi og lögreglumenn embættisins.
„Ég er að tala við alla lögreglumenn í landinu til þess að ræða við þá um skipulagsbreytingar. Við ætlum að fækka lögregluembættum í landinu þannig að þau verði stærri og sterkari og lögreglan geti náð enn þá betri árangri í sínum störfum heldur en í dag er,” segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Hvað erum við að horfa á mikla fækkun?
„Við erum að horfa til þess að embættin verði svona fjögur eða fimm talsins,” segir Þorbjörg.
Í dag eru lögregluembættin níu og þetta er því heilmikil fækkun embætta. En mun það veikja lögregluna eða efla hana?
„Þetta mun hiklaust efla hana. Við erum ekki að fækka starfsstöðum lögreglunnar hringinn í kringum landið og við erum sannarlega ekki að fækka lögreglumönnum. Ég er að horfa til þess hvernig við getum gert góða lögreglu enn þá sterkari,” segir ráðherra.
En hvernig líst lögreglustjóranum á Suðurlandi og formanni Lögreglustjórafélags Íslands. Grími Hergeirssyni á fækkun embættanna?
„Mér líst ágætlega á að þetta verði skoðað og ég lít jákvætt á þetta svo framarlega að þetta komi til með að styrkja lögregluna í landinu, ég hef alveg trú á því,” segir Grímur
Hvað með Suðurland, munu einhverjar stöðvar leggjast niður hér eða hvernig verður það?
„Nei, ég geri ekki ráð fyrir því og ráðherra hefur kynnt þetta þannig að það stendur ekki til að leggja niður löggæslu eða lögreglustöðvar í landinu þrátt fyrir að það sé verið að skoða þessar skipulagsbreytingar,” segir Grímur