Alvarlegt umferðarslys varð á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag þegar tveir bílar skullu saman á Hálsasveitarvegi í Borgarfirði. Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi.
Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir að klippa hafi þurft tvo út úr bílum eftir áreksturinn. Þeir voru í sitt hvorum bílnum en í öðrum þeirra var einn og í hinum farþegi og bílstjóri.
Hann staðfestir að engin börn hafi verið í árekstrinum.
Talsverður viðbúnaður er á vettvangi árekstursins. Þar eru til dæmis viðbragðsaðilar á borð við sjúkraliða og lögreglu ásamt rannsakendum frá Lögreglunni á Vesturlandi og frá rannsóknarnefnd samgönguslysa, að auki við rannsakendur sem koma frá tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ásmundur segir að helsta leiðin frá Reykholti og inn í Húsafell sé lokuð vegna starfa viðbragðsaðila.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að beiðni um þyrlu Gæslunnar hafi borist um 20 mínútur yfir 15. Þá var óskað eftir að hún yrði kölluð út með mesta forgangi. Hún lenti í Reykjavík um tíu mínútur í 17.