Alvarlegt atvik í Kópavogi

Kópavogur
Mynd: Víkingur
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu en greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu.
Brugðist var hratt við og var lögreglan með mikinn viðbúnað í ljósi tilkynningarinnar.
Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu að sögn lögreglu.