Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, gagnrýndi Nigel Farage, formann Umbótaflokksins (e. Reform UK), harðlega fyrir viðbrögð þess síðarnefnda við morðmáli Henry Nowak, málið hefur vakið mikla athygli og orðið að pólitísku bitbeini. Samkvæmt BBC særðust ellefu lögreglumenn og einn lögregluhundur í mótmælum í Southampton í gær, tveir voru handteknir.
Líkt og DV greindi frá í gær var hinn 23 ára gamli Vickrum Digwa var dæmdur til 21 árs fangelsi fyrir að myrða hinn 18 ára gamla Henry Nowak í Southhampton á Englandi 3. desember síðastliðinn. Digwa sagði lögreglu að Nowak hafi verið með kynþáttafordóma í sinn garð og meitt sig, lögreglan handtók Nowak fyrir líkamsárás og trúði ekki að Digwa hafi stungið hann fyrr en hann hafði misst meðvitund.
Sjá frétt: Sláandi upptaka úr búkmyndavél sýnir lögreglu handtaka deyjandi ungmenni
Í umræðum um málið á breska þinginu í dag ítrekaði Starmer orð föður Nowaks um að nýta ekki morðið til sundrungar eða haturs, sagði hann það vera „ófyrirgefanlegt“ af Farage að fordæma ekki mótmælin í Southampton. „Að nýta sér þennan harmleik til að auka sundrung er rangt en að gera það þegar það fer gegn vilja fjölskyldunnar er ófyrirgefanlegt,“ sagði Starmer. Árásir á lögreglumenn við mótmælin séu óásættanleg.
Hér má sjá upptöku Guardian af orðaskiptum Starmer og Farage á þinginu í dag:
Farage sagði á hinn boginn að málið sýndi fram á laggskipta löggæslu þar sem lögreglumann kæmu öðruvísi fram við fólk byggt á uppruna þeirra. Í myndbandi sem hann birti á YouTube hvatti Farage sína til að bregðast við með „hreinni og kaldri reiði“. „Öll þau gildi og lífsskilyrði þess að búa í frjálsu landi þar sem allir eru jafnir fyrir lögunum hefur verið hent út,“ hefur FT eftir honum.

Ljósvakamiðlar Bretlands hafa ítarlega fjallað um málið í dag, BBC ræddi við Shabnam Chaudhri, fyrrum yfirmann lögreglunnar í Lundúnum, sem sagði vinnubrögð lögreglumannanna á vettvangi ekki til eftirbreytni. Þá sagði Tan Dhesi, þingmaður Verkamannaflokksins, sem er Sikh líkt og Digwa, að margir sem tilheyra þeim hópi séu hræddir, þá sérstaklega við umræðuna á samfélagsmiðlum, morðið hafi ekkert haft með trúarbrögð þeirra að gera.
Sarah Jones, ráðherra lögreglumála, sagði við BBC að hún viðurkenndi að orðalag í reglugerð sem beint væri gegn kynþáttahatri í lögreglunni væri rangt. Það að „koma fram við alla í takt við þeirra þarfir“, væri ekki það sama og að koma öðruvísi fram við fólk byggt á kynþætti eða menningarlegum bakgrunni, skerpa þurfi á því að allir séu jafnir fyrir lögunum.