Maðurinn var leiddur fyrir dómara klukkan tólf á staðartíma í dag vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar en þrír urðu fyrir skoti í árásinni í gær; lögreglumaður, almennur borgari og sá grunaði.
Almenni borgarinn sem lést var sextíu og tveggja ára maður en ástand lögreglumannsins er sagt stöðugt. Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið.
Hinn 48 ára gamli maður er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps eftir að hafa skotið á lögreglumann, samkvæmt því sem fram kemur á danska ríkisútvarpinu en við hann hefur þegar játað manndrápið.
Fréttin er í vinnslu.