Lettneska ríkisflugfélagið AirBaltic, hefur óskað eftir greiðslustöðvun á meðan fyrirtækið freistar þess að ná tökum á skuldum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu er borið við verðhækkunum á eldsneyti vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.
Félagið tapaði meira en 70 miljónum evra á fyrsta ársfjórðungi, en tilkynnti um að það hafi fengið lánalínu upp á 350 milljónir Evra
AirBaltic hefur flogið milli Riga og Keflavíkur síðustu ár.