Andi Hoti skoraði tvívegis fyrir Aftureldingu þegar liðið lagði Fylki að velli í 1. deild karla í fótbolta að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld.
Leiknum lauk með stórsigri Aftureldingar, 5:1, en með sigrinum tyllti Afturelding sér á topp deildarinnar og er með 16 stig, stigi meira en Fylkir sem er í öðru sætinu með 15 stig.
Andi, Óðinn Bjarkason, Joachim Holtan og Bart Kooistra skoruðu mörk Mosfellinga í leiknum en Hlynur Sævar Jónsson minnkaði muninn fyrir Fylki á 57. mínútu í stöðunni 5:0.