Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði, með þeim afleiðingum að það þurfti að aflífa hana, eftir annað innbrot í svínabú Stjörnugríss að Brimnesi á Kjalarnesi í nótt. Fjölmörg dýr séu særð og með áverka.
Þetta segir í tilkynningu frá Geir G. Geirssyni forstjóra fyrirtækisins.
Þetta er í annað sinn í ár sem brotist er inn í búið. Fyrra innbrotið var í maí þar sem tíu grísir drápust og aflífa þurfti einn. Þá var bréf skilið eftir. Í júní var svo brotist inn í alifuglabú á Reykjum í Mosfellsbæ og í minkabúið Dalsbú í Mosfellsbæ í júlí.
Búast má við frekari afleiðingum á næstunni
Geir segir að í þetta sinn hafi rúða verið brotin og farið inn um hana. Innréttingar hafi verið rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar. Afleiðingarnar voru þær að dýrin gengu laus um húsin og sum þeirra komust út á tún við búið.
Þá segir Geir að búast megi við frekari afleiðingum innbrotsins á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, minnkaðrar mjólkurframleiðslu hjá gyltum og mögulegra fósturláta.
Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna. Hvað gengur þessu fólki eiginlega til?
Við töldum í einfeldni okkar að þeir sem stóðu að fyrra innbrotinu hefðu ekki gert sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna og að vanþekking þeirra hefði orðið þess valdandi að úr varð dýraníð af verstu sort.
Engu líkara en að tilgangurinn sé að valda ótta, meiðslum og dauða
Geir hvetur þá sem stóðu að verknaðinum til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Þá biður hann þá sem hafa upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu.
„Í ljósi nýlegra atburða á Reykjabúinu og Dalsbúinu, auk þessa endurtekna innbrots í svínabú okkar, tel ég hins vegar ljóst að þessar aðgerðir hafa snúist upp í andhverfu sína, þ.e.a.s. virðast ekkert með umhyggju fyrir dýrum eða velferð þeirra að gera. Þvert á móti er engu líkara en að tilgangurinn sé að valda dýrum ótta, meiðslum og dauða.“