Lögregla var kölluð að húsnæði Stjörnugríss í Saltvík í morgun en þar hafði svínum verið hleypt út. Fimm smágrísir drápust og aflífa þurfti eina gyltu sem hafði fótbrotnað. Fjölmörg dýr eru særð og með áverka. Frá þessu greinir Vísir.
Aftur brotist inn hjá Stjörnugrís og fimm smágrísir drápust - „Hvað gengur þessu fólki eiginlega til?“