Í dag er útlit fyrir hæga breytilega átt, rigningu með köflum í flestum landshlutum og hita allt að 17 stigum. Á morgun er von á óstöðugu lofti með skúrum og hvessir aðeins, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Lægð sem er stödd við Vestmannaeyjar þokast hægt og rólega til norðausturs í dag. Hæg breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum, en þurrt að kalla á Vestfjörðum. Vestlæg átt 3-8 m/s síðdegis. Stöku skúrir á vesturhelmingi landsins, en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta. Hiti 10 til 17 stig yfir daginn.
Á morgun kemur óstöðugt loft til okkar. Skúrir víða um land, en bjart að mestu austast á landinu. Hvessir um hádegi, suðvestan 8-13 m/s síðdegis. Hiti breytist lítið.
Suðvestanátt með skúraleiðingum heldur áfram á föstudag, en dregur aðeins úr vindi og skúrir fara minnkandi þegar líður á daginn. Hiti 11 til 16 stig.
Á laugardag er útlit fyrir suðlæga átt með rigningu, en þurrt norðanlands. Á sunnudag gera spár ráð fyrir austlægum áttum og vætusömu veðri um mestallt land. Hiti yfirleitt 10 til 17 stig.