Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (Environmental Protection Agency, EPA) ætlar að afnema takmarkanir á útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá kola- og gasorkuverum. Takmarkanirnar voru settar í forsetatíð Joe Bidens. Einnig verður komið í veg fyrir að settar verði frekari reglugerðir um losun frá orkuverum. EPA segir að stofnunin hafi ekki lagaheimild til að setja slíkar reglur.
Þetta var tilkynnt á fundi orkuráðherra G20-ríkjanna í Houston í dag.
Lee Zeldin, forstjóri EPA, segir að afnám reglugerða muni gera Bandaríkjunum kleift að koma sér upp nýjum innviðum til að mæta síaukinni orkuþörf. Þá muni áætlanir EPA spara raforkuiðnaðinum 370 milljónir bandaríkjadala sem annars hefðu farið í að framfylgja reglugerðum.
Raforkuiðnaðurinn ber ábyrgð á nærri fjórðungi alls útblásturs gróðurhúsalofttegunda í Bandaríkjunum. Aðeins er meiri losun frá samgöngum.
Stríðinu gegn kolunum lokið
Umhverfis- og lýðheilsusinnar segja hins vegar að afnám reglugerða leiði til milljarða dala kostnaðar vegna lýðheilsutaps og umhverfisskaða. Í tíð Bidens hafði EPA metið að reglurnar myndu hafa í för með sér heildarávinning upp á 370 milljarða dala.
Varaorkuráðherrann Kyle Haustveit sagði í tilefni tilkynningarinnar að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði þar með bundið enda á stríðið gegn „fallegu, hreinu kolunum“. „Kol eru áreiðanleg, ódýr og örugg,“ sagði Haustveit við blaðamenn.