Veðrið lék ekki við Austfirðinga í dag en hátíðahöldum í tilefni af 17. júní var ýmist aflýst eða þau færð inn sökum veðurs.
Hátíðardagskránni á Djúpavogi var til að mynda aflýst en þar var kalt í veðri, rok og rigning en ef litið er á veðurathugunarstöð á svæðinu var hiti á bilinu 6 til 9 stig og vindur 8 til 13 m/s.
Stefnt er á að annar viðburður verði haldinn seinna í sumar þegar veður leyfir.
Í Neskaupstað var skrúðgangan felld niður og hátíðardagskráin færð inn í íþróttahús bæjarins.
Svipað var uppi á teningnum á Egilsstöðum og á Seyðisfirði þar sem hátíðarhöld voru einnig færð inn í íþróttahús.